Meirihlutinn í borgarstjórn

Skrifað á Facebook 11. október 2018 klukkan 18:05 :

Hef verið ánægður með margt af því sem meirihlutinn hefur gert. 
Bæði þessi og fyrri og þar á undan. Sérstaklega hjá Pírötum og Viðreisn.
Aðalega hvað varðar Skipulagsmál.
Þetta mál er samt að mínu mati svo fáránlega mikil spilling og sóun á almannafé
að það hálfa væri miklu meira en nóg. 
Að eyða 158 milljónum króna af fé borgarbúa í einhvern bragga fyrir HR, sem er ekki einu sinni rekið af borginni, er eitt.
Að eyða 756 þúsund krónum í að gróðursetja einhver strá er annað.
(sem munu svo kannski fjúka út í veður og vind í vetur)
Að eyða 400 þúsund krónum í að niðursetja stráin er enn annað.
Að framkvæmdin við braggann fari svo um 300 milljónum fram úr áætlunum og sé bráðum komin upp í ríflega 500 milljónir (skv. sumum fréttum) er svo enn enn annað.
Að stór hluti framkvæmdarinnar sé svo ekki boðin út heldur, svk sumum fréttum., framkvæmt af borginni sjálfri, er svo enn enn enn annað.
Það er góð og gild ástæða fyrir því að það séu reglur um að framkvæmdir yfir ákveðni upphæð þurfi að fara í útboð. 
Gott ef mörkin liggja ekki við 15 milljónir. 
Það er m.a. svo svona lagað geti ekki gerst.
Þ.e.a.s að verk fari langt fram úr áætlunum.
Áður en að verk eru boðin út gera ákveðnir (eða óákveðnir) starfsmenn borgarinnar mat á aðstæðum og reikna út hvað þurfi að eyða miklum pening í viðkomandi framkvæmd. 
"Svona mikill peningur í klæðningu utandyra."
"Svona mikill peningur innanhúss" og svo f.r.v...
Svo auglýsir borgin verkið út og þeir sem vilja, oftar en ekki verktakafyrirtæki, gera mat á aðstæðum og gera mat á því hvað fyrirtæki þeirra sé tilbúið að leggja í framkvæmdina.
Svo eru haldin uppboð og það fyrirtæki sem býður lægsta verðið, sem næst þeim kostnaði sem borgin taldi, fær oftar en ekki verkið og peninginn sem það býður í verkið.
Fyrirtækið skuldbindur sig þá til að vinna verkið fyrir þann pening sem það bauð í verkið.
Efitlit er svo haft með fyrirtækinu um að farið sé eftir þeim leiðbeiningum sem borgin gaf út í útboðsauglýsingunni.
Næst þegar það á að vera með svona stórar framkvæmdir í borginni á að fara með það í útboð.
Þeir sem vilja taka að sér verkið fá þá þau skilaboð að viðkomandi hafi svona mikinn pening til að framkvæma verkið og fái í staðinn sömu upphæð greidda inn á reikning í eigu fyrirtækisins. 
Allur umfram kostnaður myndi þá lenda á fyrirtækinu en ekki skattgreiðendum.
Slíkt yrði hvati fyrir eiganda viðkomandi fyrirtækis að halda sig við umsamda upphæð, vitandi það að annars þyrfti fyrirtæki viðkomandi að greiða mismuninn.
Endurgerð Hverfisgötu kostaði um 1 milljarð og var ein dýrasta endurgerð götu sem ráðist hefur verið í, þar sem allar lagnir voru endurnýjaðar og fleira.
Það væri hægt að endurgerða hálfa Hverfisgötu í viðbót fyrir þá upphæð sem fór í þessa framkvæmd.
Það væri hægt að koma upp sómasamlegri aðstöðu á öllum frístundaheimilum og félagsheimilum við Grunnskóla borgarinnar fyrir 500 milljónir.
Kjörnir fulltrúar í borgarstjórn eru ekki þar bara til þess að fá 600 - 900 þúsund krónur á mánuði fyrir að gera ekki neitt.
Þeir (fulltrúarnir) eru að fá þann pening m.a. til að gæta þess að ávallt sé vel farið með hverja einustu krónu sem borgin hefur úr að ráða, enda peningarnir okkar.
Kjörnir fulltrúar eru heldur ekki að fá þann pening með því að segjast styðja við bæði borgarrekna og einkarekna leikskóla og grunnskóla fyrir kosningar, en eftir kosningar greiða atkvæði gegn tillögu um jöfn framlög með skólum óháð því hvort skólarnir væru í einkaeigu (eigu okkar t.d.) eða í eigu borgarinnar (og í eigu þeirra sem reka borgina.) 
(í eigu borgarinnar og þarmeð þeirra sem stjórna borginni) en ekki í einkaeigu (og leyfa okkur sjálfum að stofna okkar eigin leik eða grunnskóla ef við vildum og keppa við aðra samborgara okkar um að veita bestu þjónustuna. 
"Keppast um kúnnann". )
*Hóst´* VIÐREISN * Hóst.
Virðeisn getur þó að nokkru leyti fríað sig ábyrgð á þessu braggamáli.
Það getur alþjóðahyggjusinnaði vinstri/ hægrimiðjuflokkurinn Píratar hinsvegar ekki gert.
Og ekki heldur vinstri félagshyggjuflokkarnir Samfylkingin og Vinstri græn.
- The End.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband